Páskafrí.
Vinnandi fólk í Danmörku er nú komið í kærkomið frí. Nú getur maður farið að einbeita sér að páskahaldi. Og páskaeggjaáti..en það er nú önnur saga. Það var helgarfiðringur í samstrarfsfélögunum í dag. En í morgun líkt og síðustu daga hefur mér verið ekið til vinnu, það er ákaflega ljúft að líða áfram frammhjá strætóskýlinu og gretta sig framan í fólkið sem þar bíður. En ég hitti það nú í næstu viku líklega....
Gestirnir voru teknir í gönguferð um nágrennið, það er gönguferð sem við erum að þróa og verður fljótlega kominn á geisladisk sem fólk fær bara lánað og labbar síða með heyrnatól. Hlustar á diskinn sem við höfum síðan lesið inná upplýsingar um helstu kennileiti.
Á meðan bíðum við svo heima og setjum á könnuna.
Það rættist nú úr veðrinu og það er ákaflega milt og gott veður núna, þannig að það styttist í bestu hliðar veðursins hér í Danmörku. En ekki er nú mikill hitinn. Húsmóðirinn fór og keypti viðbótar húsgögn í garðinn og nú erum við tilbúinn að borða úti kvölds og morgna. Auk þess lásum við í staðarblaðinu að búið væri að setja á flot túristabátinn sem siglir um stórt vatn hér í Skanderborg frá maí til september. Báturinn heitir Dagmar.
Kristinn Páskaungi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home