Góðir Gestir.
Þá eru páskarnir komnir í hús hjá okkur. Foreldrar Dagmar eru komnir og bróðir hennar og hanz kærasta. Í húsið er komið urmull af íslensku hráefni. Börnin alsæl að hafa afa sinn og ömmu. Þau hafa hinsvegar ekki fengið besta veðrið en það hefur verið dimmt yfir og stöku skúr. En það er bara gott fyrir Peru & Epla. Þau eru líka alsæl. Það er kátt í kotinu og þau komu hingað akandi frá Kaupmannahafn á splunkunýrri Mözdu sem var keyrði 5 km, þegar þau fengu hana afhenta. Við höfum notið góðs af þeim bílaleigubíl og hér hefur verið þotið í búðir og birgðarstaða ölsins löguð....var einmitt tilboð núna í verslunarmiðstöðinni 1kassi 30flöskur af Túborg á 87 krónur dk.
Það voru teknir tveir kassar glúgg, glúgg,glúgg......annars er allt við það sama.
Skyndilega birtust nýjir nágrannar í næsta hús sem hefur staðið autt síðan við komum. Það eru hjón á fimmtugsaldri með þrjú börn á ólíkum aldri. Þau eru að flytja frá Þýskalandi eftir 6 ára búsetu þar. Eru hinsvegar danir í húð og hár. Þau birtust hér á hlaðinu og horfðu mikið á stofu gluggann hjá okkur. Það varð til þess að Dagmar bauð þeim inn, en þau voru í miklum vangaveltum um það hvernig hægt væri að festa upp gardínur svo hátt í gluggann. Sama vandamál og vangaveltur sem við lágum og sváfum yfir líklega í hálfan mánuð. En þau hafa fengið fríkeypis ráð og eru alsæl. Síðan kemur í ljós hvernig sambúðin gengur.
Hefur verið nóg að gera í vinnunni þessa daga, en það verður fínt að komast í smá páskafrí. Það er líka vonandi að veðrið fari að skána, og lifna svona yfir þessu öllu. Það var nefnilega keypt garðhúsgögn, stólar og borð...og bíllinn notaður til flutninga. Svo það verður hægt að hugge sæ...kvölds og morgna.
Kristinn Túborgsson.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home