þriðjudagur, apríl 13, 2004

Axel Orri byrjar hjá dagmömmu.

Í morgunn fór Axel Orri í fyrstu heimsókn sína til dagmömmunnar. Hann hafði undirbúið sig þó nokkuð fyrir ferðina því hann hefur spurt núna nokkuð reglulega hvað þessi og hin orð þýða á dönsku. Hann t.d. spurði á sunnudaginn um þessi orð, kisa, buxur, hlaupa, drekka...og spurði hann alltí einu um orðið "rass" og síðan um hið svokallaða "rilli-rill" en það er sprellinn á honum. Dagmar var búin að fá að vita að hann yrði bara lítið svona fyrst og farið yrði rólega af stað. Þau komu á hjólinu til Lælu klukkan rúmlega 9, Axel Orri fór inn og dagmamman sagði við Dagmar að hún skyldi bara koma aftur klukkan tólf og kanna stöðuna.

Með hjartað í buxunum og tárin í augun fór móðir hans á reiðhjólið sitt og hjólaði sína leið. Axel Orri labbaði inn glaður og ánægður....fyrst í stað....síðan dróg nú eitthvað úr gleðinni og hann fór nú eitthvað að skæla en fékk fljótlega huggunn. Mamma hans sótti hann síðan um tólfleytið og þá hafði þetta bara gengið svona ljómandi vel og hann bara mjög ánægður.

Hann ku þó ekki vera ósvipaður systur sinni í háttum. En dagmömmunni sagði svo frá að hann hefði aðstoðað hana heilmikið í dag. Þá einkum við gæsluna á hinum börnunum (sem eru nokkuð yngri en Axel Orri), en eitt barnið hljóp eitthvað frá vagninum í útivistinni en Axel Orri sótt það og sagði því að halda í vagninn. Hann hafði síðan eitthvað verið að siða hin börnin við matarborðið....svo hann amk byrjar vel.

Hann var síðan úti í allann dag með mömmu sinni, en hennar grænu fingur urðu moldarskítugir í dag.
Garðurinn er allur að taka á sig svip fallegustu lystigarða heimsins. Hún er snillingur í höndunum konan.

Minn sjálfur kominn til vinnu, og allir ferskir erftir páskafríið en fara nú svona mátulega hratt af stað. Nóg að gera hjá mér svosem. Dönskunámskeið síðdegis og gott spjall við nágrannan Svend og Bíbi hér útí garði en þau eiga einmitt 7 mánaða gamlan hund sem minnir á ofvaxna kanínu. Hundurinn var hinsvegar keyptir fyrir um 160 þúsund krónur ísl. en þetta er Franskur- Bolabítur....svo hann mun breytast áður en langt um líður úr þessari kanínu í þennan gullfallega bolabít...það verður fróðlegt að fylgjast með Alfreð. En það heitir einmitt hundurinn.

Kristinn hundavinur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter