Morgunmatur II
Var ráðlagt af húsmóðurinn að endursemja þennan pistil sem þótti sundurlaus og óskýr....ég vart vaknaður er hann var skrifaður.
Í morgunn vöknuðum við um sjö leytið. Allir rifu sig á lappir og Axel Orri í broddi fylkingar tilbúinn að taka hraustlega til matar síns. Enda krafðist hann þess við fyrsta hanagal að hann fengi hafragraut, og þrábað um að útbúinn yrði hafragrautur.....þegar komið var niður með drenginn...krafðist hann hinsvegar þess að fá kornflex og ekkert annað. Þar kom staðfestann í ljós úr föðurættinni en sveiflurnar komu í ljós úr móðurættinni.
Kanínurnar voru teknar inn í lok morgunmatar fyrir morgunn-knús og yfir morgunsjónvarpinu fengu þær að trítla á stofugólfinu, Axel Orra og Önnu Marín til mikillar ánægju. Húsbóndinn hélt síðan til vinnu og ákvað að taka nýjan vagn í vinnuna eða vagn 107 hann kemur nokkru síðar en bæjarbússinn. Það gekk líka svona ljómandi vel og nú er hægt að horfa lengur á sjónvarpið og ræða við konuna og börnin áður en haldið er til vinnu....svo ekki sé nú minnst á Mullersæfingarnar sem maður stundar af miklum krafti á Adamsklæðum hér í garðinum.
Axel Orri fór til dagmömmunnar og vældi vitanlega þegar skilið var við hann. Við héldum eftir gærdaginn sem var grátlaus dagur að þetta væri komið....en hann kjökraði eitthvað í morgunn og neitaði að sleppa móður sinni.....þegar hann var síðan sóttur í dag, kom í ljós að hann jafnaði sig á sjö mínútum.
Anna Marín hjólaði eða eins og við segjum hér í Danmörku...sykklaði í skólann. Og fór síðan í frístundaheimilið, hún hefur síðan verið að bjóða krökkum úr bekknum að koma og kíkja á nýju fjölskyldumeðlimina litlu.
Dagmar var heima í dag við hugleiðslu og þvotta. En hún er farin að kyrja eins og Herbert Guðmundsson. En ég vona að það standi ekki lengur...hún verður að fara komast á vinnumarkaðinn.
Nú er búið að fara í búðina kaupa sex rauðvín og tvær rósavín til að bjóða gestunum í matarboðinu á laugardaginn. Erum búin að bjóða Morten og fjölskyldu í mat á laugardaginn(vinnufélaga mínum), ætlum að taka matarboðið snemma, þar sem fjöldi barna verður með.
Ætlum því að reyna koma vönduðu skipulagi á garðinn og blómin áður en gestirnir koma. Það er komið hrikalega mikið gras í garðinum og nágrannarnir eru búnir að slá...ætli maður verði ekki að splæsa á sig slátturvél.
Því hefur verið haldið fram að U2 komi á festivalið okkar www.smukfest.dk en það er óstaðfest. Þessi útihátið er þannig að aðeins eru seldir í kringum 25 þúsund miðar, og svo er uppselt.Og það fá ekki fleiri að koma. Það er byrjað að selja miða og hátíðin er í fjóra daga. Þetta ku vera ein vinsælasta útihátíðin hér í Danmörku. Það er ekkert minna. Hátíðin er í ágúst.
Kristinn morgunhani og garðyrkjustjóri.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home