Nikkolæ og Júlía
Horfðum í gærkvöldi á heila seríu af þessum frábæru þáttum um meistara Nikkolæ og fyrverandi konuna hans hana Júlíu. Syrpan var tekinn upp á Íslandi og send okkur í express pósti úr Garðabænum. Við hjúin sátum síðan með popp & tyggjó og horfðum á. Mikið oboðslega endaði þessi þáttur ömurlega, já bara ömurlega. Endirinn var líkt og í amerískri sápuóperu, og eftir stóðu heilu fjölskyldurnar í rúst.
Sjaldan hef ég orðið fyrir eins miklum vonbrigðum nema ef vera skyldi hið ömurlega hlutverk Harvey Keitel í myndinni Bad Lútenent, sem er rugl. Ég mun ekki í bráð fyrirgefa rithöfundi þáttanna um Nikkolæ og Júlíu að hafa látið þættina enda með þvílíkri lágkúru...hver hefði trúað þessu.
Strax eftir að við horfðum á þættina sagði ég við Dagmar að það yrði mitt fyrsta verk að skrifa um þetta í dagbókina. Ég vona bara Nikkolæ vegna að ég mæti honum ekki á götu hér í Skanderborg, sá skal hundur heita. Og Júlía ætti bara að skammast sín um alla framtíð. Sveiattannn.
Kristinn, hættur að horfa á sjónvarp.
ps. Þá er maður búinn að létta þessu af sínu hjarta.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home