mánudagur, apríl 19, 2004

Tör mí Lús.

Já törmílús hljómar gamalt popplag með Loverboy, frábær hljómsveit sem gerði garðinn grænan hér um árið á Akranesi. En nú er öldin önnur, terrar nú lús. Það er lús í skólanum hjá Önnu Marín og litlu sætu gæludýrin sem festast í höfði mannanna hafa tekið sér bólfestu í höfðum heimilisfólksins. Já tör mí lús...syngjum við nú saman hér. Lús í Önnu Marín, lús í Dagmar, en enginn lús í bóndanum eða syni hans. Ónei....enda leiddist okkur alltaf Loverboy...eða þannig. En hvað er til ráða. Mæðgurnar hafa fengið martraðir, óskilgreindan kláða, örvæntingar-æði, skapbresti ofl.

Þær hafa hinsvegar sigrað baráttuna við lúsina í bili. Hún er dauð. Það voru sett rótsterk hreinsiefni í mæðgurnar og um helgina sváfu þær báðar með hauspoka....frekar skondin sjón. Ennþá fá þær reyndar þá tilfinningu að lúsin læðist um höfuð þeirra....en það er bara í nösunum á þeim. Nei, ég vona það nú reyndar ekki. Það er bara hugarburður. En hvað þetta gerir nú lífið bara skemmtilegt. Lús hefur verið landlæg á Íslandi í fleiri hundruð ár og þar eru allir með lús en enginn talar um það. Hér í Danmörku kom lúsin með innflytjendum frá Sjálandi og hefur verið hvimleiður skratti síðan.

En nú fer ég og set Loverboy og fóninn, mig er lika farið að klæja aðeins hérna bakvið eyrun.

Kristinn Lúsablesi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter