sunnudagur, apríl 18, 2004

Sunnudagur í Skanderborg.

Vorum í slökun í dag mestan part dags. En eftir hádegi fengum við símtal um að við mættum sækja tvo einstaklinga sem við höfðum rætt um að ættleiða. Þeir komu í dag Mary og Katrine. Tvær kanínur af séröldu hanskakyni. Svo nú er setið öllum stundum með litlu dýrin. Það er mikil gleði í húsinu í dag. Enda börnin komin því sem næst með ný systkini.

Katrine vinkona Önnu Marínar bauð henni fyrir nokkru síðan að taka að sér kanínur í fóstu. Haldinn var fundur í stjórn heimilisins og það samþykkt einróma. Þær eru því komnar núna eftir þó nokkra bið að Önnu Marín fannst allavega. Keypt var búr, og búið að lesa heilmikið á netinu um sálarlíf þessara dýra. Svo er bara að sjá. Nú eru þær Katrine og Mary (Donaldson...næsta drottning hér í Danmörku).

Við höfum síðan bara verið í rólegheitum. Axel Orri fór aðeins út að hjóla og Anna Marín var með vinkonu sinni í dag. Enginn garðyrkja í bili en nú fer að koma því að maður verði að slá. Nágrannarnir eru allir búnir að slá hjá sér svo maður verður að fara leggja drög að slíku. Einnig verður maður líklega að girða allann garðinn eftir að nýbúarnir komu hér...ekki þó í næsta hús heldur hingað til okkar þær MogK.

Svo er vinna á morgunn og Axel Orri fer til dagmömmunnar. Allt í ró og spekt, og við höfum svosem ekki heyrt í neinum í dag, nema þá helst Heimi litla sem býr í Kaupmannahöfn. http://www.heimirogiris.blogspot.com/. En nóg um það í bili.

Kristinn Kanína.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter