Helgarpistill.
Föstudagur.
Kom snemma heim, búinn að vinna af sér klukkutíma fyrr í vikunni. Þar með lauk vinnu klukkan hálf fjögur í stað hálf fimm eins og venjulega.
Eftir vinnu var þrammað í byggingarvörumarkaðinn og þar var nú keypt í ýmislegt skal ég nú segja ykkur. Við höfum nú fjárfest í okkar fyrstu gras-sugu. Sláttuvél og það eru nú enginn smá tíðindi. Húsbóndinn og frúin beint útí garð eftir veruna í byggingarmarkaðnum og í hanskana. Þetta er 33ja hestafla karlmótor með tvígengiskúluvél. Og virkar svona ljómandi fínt.
Við keyptum reyndar ýmislegt annað, en við hyggjumst nú girða vel af garðinn hjá okkur, þannig að Nýbúarnir hér hjá okkur komist ekki í burtu og því var keypt um 20 metrar af girðingarefni sem verður sett niður strax eftir helgina. Þar sem ýmis hjálpardót verður ekki til taks hjá byggingarmarkaðnum fyrr en á þriðjudag. Við keyptum líka fjóra útikyndla svona til að lýsa upp rökkrið þegar við setjumst út með heitt Æriskoffíið og hugsum um lífið...á kvöldtíma. Auk þess var keyptur 50 lítra sekkur af mold, og nú eru pottarnir og blómin kominn á sinn stað.
Aðkoman er því fyrir vikið með nýslegið tún, og nýja potta hreint út sagt stórkostleg. Svo er húsmóðurin fyrir að þakka.
Við gátum hinsvegar ekki leyft okkur það að hafa garð nágrannans ósleginn og eftir þó nokkra umhugsun og mat á aðstæðum og áliti samborgaranna, var ákveðið að slá blettinn hans. En þó aðeins að framanverður. Nágrannarnir frá Þýskalandi munu ekki koma hér fyrr en í júní og því útlit fyrir að grassið hjá þeim hefði tept innganginn hjá okkur. Því var þetta gert með semingi þó.
Aarhus.
Fórum í dag til Orhúss og versluðum föt á alla fjölskylduna fyrir tugi þúsunda, já það var bara gert grand og nú eru kallir með ný föt og nýja skó. Það er svo komin sumarstemming í Rosenkjærvej, það er ekki spurning. Tókum strætó í morgunn klukkan hálf tíu og komum aftur um hálf þrjú. Gekk ljómandi vel. Löbbuðum strikið og kíktum í nokkrar búðir. Já það var bara skemmtilegt. Svo styttist í hátíðarkvöldverð þar sem vinnufélaganum og frú verður boðið í íslenzkt lambalæri. Það verður fróðlegt að sjá hvort líki eða hvort þau fari héðan með hryllingi...
Kveðjur,
Margir traustir lesendur hafa fylgst með dagbókinni í langann tíma. Og vill ég þó sérstaklega nefna þessa sem mér er kunnugt um að lesi um leið og ég þakka þeim sýndan áhuga og jafnframt óska þeim góðrar sumarkomu, en þu ku vera gengið í garð á Íslandi.
Fólkið í Bakkaseli og Asparlundi, Hemmi litli í Köben, og uppáhaldsfrænka hans, hin síunga og Íslandsmeistari í símsvörun innanhús og lætur fátt slá sig útaf laginu, Guðrún í Hafnarfirði, reyndar er hún gift Villa og það vill svo skemmtilega til að hann á einmitt tvíburabróður sem vinnur með mér. Svo á hverjum degi hugsa ég um Villa, þegar ég mæti til vinnu...og sé tvíburan í kaffi...hann vinnur ekki mikið.
Já og svo hún amma mín í Hlíðunum sem ég hef frétt af sem nýjum lesanda. Þá er það upptalið tel ég. En hafi ég gleymt þér þá væri gaman að vita af því: kristinn@c.dk já og það er bara vonandi að einhver hafi móðgast yfir upptalningunni og láti í sér heyra.
Nýjar myndir á heimasíðuna væntanlegar í helgarlok.
Kristinn alltaf í nýjum fötum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home