þriðjudagur, apríl 27, 2004

Ódýru innkaupin.

Danir keppast við að kaupa inn ódýrt, það er stundum þannig að það eru auglýst ódýr tilboð í bæklingum sem dreift er hér í hvert hús. Laugardagarnir fara einmitt hjá okkur að lesa þessa bæklinga sem geta verið mjög skemmtilegir. Hinsvegar var það nú í morgunn að nýr byggingarmarkaður opnaði í Aarhus, svokallað Jem og Fix. En þessi markaður er víða. Vinnufélagi minn danskur kom með úrklippur úr þessum bæklingum og sýndi mér í hádegismatnum. Hann ætlaði strax eftir vinnu að keyra í búðina og gera heldur betur góð kaup....þar var nefnilega hægt að kaupa sér mold, því nú var sekkurinn á 5 krónur í stað 12 krónur áður. Hann ætlaði líka að kaupa sér DVD spilara sem var á tilboði á 400 krónur danskar eða rétt um fimm þúsundkallinn.

Svo er það þannig að þegar auglýst eru tilboð í búðunum þá keyra danirnir af stað í bílum sínum og kaupa á einum stað 23 pakka af matarkexi, á næsta stað kaupa þeir 46 rúllur af klósettpappír og þeim þriðja átta pör af gúmíhönskum....allt á tilboði. Við höfum svo ótalsinnum mætt fólki koma útúr búðunum hér með fullt fangið af þessum hlutum og þeim eingöngu.....við höfum staðið okkur aðþví að stara viðstöðulaust á eftir þessu fólki fara í bílana sína og flissa...því þetta er engu lagi líkt.

Annars gerðum við fín kaup í vikunni, keyptum sextíu stokka af eldspýtum í súpermarkaðnum og svo sá ég tilboð á bensínstöðinni þar sem var verið að selja eyrnapinna, tvöþúsund stykki á sama verði og 50 stykki.

Þegar allt er reiknað þá margborgar sig að kaupa meira magn en minna í einu...þetta er bara ekkert svo vitlaust...ha.

Kristinn Eyrnastór.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter