sunnudagur, maí 09, 2004

Samkynhneigðar Kanínur.

Hver hefði trúað því....upp er kominn ótrúleg staða hér í Skanderborg. Það er hver viðburðurinn sem rekur annan. Við reglubundna hreinsun á búrinu um helgina hjá Kanínum vorum. Voru þær samkvæmt venju settar úr búrinu sínu Katerine og Mary (Donaldson). Hófust síðan ræstingar og fóðurskiptin. Sópað var og dustað, skipt um vatn og nýtt kanínu-kornflex sett í búrið. Um ný girrtann garðinn hlupu þær glaðar samkvæmt venju. Skyndilega stöðvar Katerine og snýr sér að Mary....og ekki nóg með það heldur hoppar í snarhasti uppá Marý og hefur í frammí einhverja þá dónalegustu tilburði sem hugsast getur. Urðum við öll vitni að þessum hryllingi. Svo húsmóðurinn sagði uppáhátt við dóttur sína " Stöðvaðu þetta, stöðvaðu þetta". Hleypur þá dóttir okkar til og þrífur í eyrun á Katerine og rífur hana upp....virðist þá sem lítill dindill birtist innan um loðinn feldinn. Kemur þá í ljós að Katarine er KARLMAÐUR. Og með það sem við köllum hér "rilla rillll".

Þegar í stað var hringt í gefandann.....vinkonu Önnu Marínar sem kom á hjólinu sínu í gærkvöldi, og voru nú bæði Mary og Katerine teknar í gjörgæslu. Fór svo úr að farið var með Mary og Katerine...sem réttara væri að kalla nú Katter, Kristján eða jafnvel Kratinn. Og fór með þau hjú heim til sín. Þar tók móðir vinkonunnar við og fengum við nýjan úrskurð í morgunn. Mary er einnig KARLMAÐUR. Við höfum haft homma-kanínur í búrinu nú í rétt tæpan hálfan mánuð. ....... sjokkið er allgjör....og eitthvert hið mesta síðan hingað var flutt.

Búrið er nú tómt og mun gefandinn hugsa ráð sitt næsta sólarhring....við fáum því annað hvort Kratann eða Marýus til baka...en saman geta þeir ekki verið. Það er ljóst. Vonirnar sem við bundum við Mary (Donaldson) og Katerine eru brostnar. Og það biðjum við almættið að hugsa um að verði nú Freðrik ekki fyrir slíkum vonbrigðum með sína orginal Mary líkt og við.

Annars allt við það sama, við hugleiðum einn hvort við seljum eða leigjum. Höllumst aðþví að selja. Vill einhver kaupa HÖLL..? ? ? nú eða leigja hafið þá samband. Hverfið hefur nú aðeins hækkað líklega í verði því bróðir hennar og eiginkona hans í Eikjuvoginum hafa selt sitt slot og keypt í Garðabænum...til lukku með það. Þau endust ekki lengi í hverfinu. Og það er ekki laust við að maður sakni þeirra þegar þau eru farinn....nei líklega ekki.

Vinna á morgunn, löng helgi í dag. Húsbóndinn og börnin færðu móðurinn blóm í tilefni dagsins, en líkt og á Íslandi er mæðradagurinn hér í dag. Bestu kveðjur, til þín móðir, þú færð hugarblóm frá mér.

Kristinn 78.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter