Lífið er ein áskorun.
Þá er komin löng helgi hér í Danmörku. Almennur frídagur á morgunn og það vill svo heppilega til að það er St.Bededag eða sánkti bænadagurinn.....og þá er tími til að biðja. En um hvað á að biðja ? Jú nú er stóra spurningin hvað verður um Heimana. Eða eins og við kjósum að kalla SunShineHills þar sem sjálfur Reynir Pétur hefur alið manninn.
Við stöndum frammi fyrir því að ákveða hvort við eigum að selja eða leigja aftur íbúðina okkar. Leigjandinn hefur semsagt ákveðið að flytja til Englands en hann ku hafa fengið inní LondonSkúlof Ekonomiks. Og mun vafalaust sækja þar tíma með sjálfri Ingibjörgu Sólrúnu.
Enn á ný, fær maður að takast á við eina áskorunina, lífið er ein alsherjar áskorun. Maður veit aldrei hvað gerist næst. En það er nú einu sinni svo að það sem ekki brýtur mann styrkir mann bara. Án þess að maður ætli nú að fara hér í djúpar umræður um sálarlíf karla og kvenna og afleiðingar atvinnumissis. Þá verður að segjast eins og er að síðasta ár var nú eitt skrautlegasta ár sem við höfum upplifað hér fjölskyldan, þvílíkar voru breytingarnar.
Hver er sinnar gæfusmiður. Klént máltæki, og ég er sannfærður um að það á ekki við alltaf. Það væri barnalegt að halda slíku fram. Það er sumt sem maður fær með engu móti stjórnað og verður fyrir vikið að beygja sig undir, og takast á við. Og fyrst ég er nú kominn í svona djúpar heimspekilegar umræður er ekki úr vegi að minnast aðeins á Áhyggjubókina sem ég hafði svo miklar áhyggjur af að geta ekki klárað......því nú er komið að uppskriftinni af áhyggjuminna lífi.
Og hvað gerir maður sé maður áhyggjufullur og stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum...jú og taktu nú eftir.
Ráðið sem nefnt er í bókinni er:
1. Spurðu sjálfan þig: Hvað er það versta sem getur komið fyrir ?
2. Ef það er óumflýjanlegt búðu þig þá undir að sætta þig við það.
3. Farðu svo í rólegheitunum að bæta úr því versta.
Spakmæli segir: Kaupsýslumenn sem kunna ekki að sigrast á áhyggjum deyja ungir. Alexis Carrel
en það ætti kanski að vera:
Fyrrverandi Fjármálamenn og frísörar sem kunna ekki að sigrast á worrís verða veikir. KFDÓ.
Kristinn í þungum þönkum.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home