Kr.Himmelfartsdag.
Já frídagur í Danmörku líkt og svo víða. Við höfum bara slakað vel á í dag. Verið þó mest á netinu við að skipuleggja hér komu gesta frá Íslandi eftir tæpar tvær vikur. Já maður er nú með ýmislegt á prjónunum. Foreldrar mínir munu þá birtast hér með tjaldhýsið sitt og ferðast vítt og breitt um landið.
Öðru leyti viðburðalítill dagur í dag. En ótrúlegt en satt Derrik og Angelika (Þýsk-dönsku nágrannarnir) fengu ekkert lánað hjá okkur í dag. Hann hefur hinsvegar undanfarið fengið eftirfarandi hjá okkur:
Límband til að laga hjólið sitt
Vínflösku opnara
Fengið að hringja til Þýskalands
Látið vekja Angelikku
Fengið garðáhöld í beðin
Fékk stunguskófluna okkar
Þvottaklemmur fyrir þvottinn
Fékk símkortið í pósti frá okkur (eftir að Dagmar hafði móttekið lykil í pósti frá honum)
Garðslátt í tvígang að framanverðu við húsið
Hvítlauk..sem við áttum ekki til, svo hann fór bara í næsta hús
Hvað höfum við fengið frá honum:
Félagsskap :-(
Og síðan sló hann blettinn framan við húsið, það er nótabene...minna grassið þar en fyrir aftan hús.
Jæja það er vonandi að hann birtist ekki hér í kvöld að biðja um eitthvað. Við erum bara þannig fólk að við getum bara ekki sagt nei....það verður ekki fyrr en hann biður um að ég lesi fyrir sig áður en hann sofnar, eða hann fái náttfötin mín...það kemur í ljós.
Góða nótt Derrik og Angelikka.
Kristinn Lánandi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home