Veikindi.
Jæja þá er sumarflenzan komin í hús. Axel Orri hefur verið slappur í dag. Hóstaði mikið í nótt, svo undirtók í náttkyrðinni. Þar sem eilíflega heyrist aðeins fuglasöngur. Hann sagðist strax í morgunn vera veikur. Og sagði að sér væri illt í maganum. Hann hefur síðan sofið í dag og slappað af með móður sinni. En haft góða matarlyst og fengið sér lúr þess á milli. Hann hefur líka aðeins kíkt út í garð, svona til að viðra sig á supermann-sokkabuxunum sínum.
Hjólaði í vinnuna og mætti löðursveittur, var spurður hvort ég hefði verið mikið í sól um helgina...ég væri svo rauður...ég veit ekki hvern andsk...spurningin átti að þýða en svaraði bara því til að ég væri útitekinn.. Ekki sem satt var að ég var að kafna þegar ég kom í vinnuna, búinn að fá mér astmapústið, næstum missa allt í buxurnar aftannogframann. Og leggjast fyrir í matstofunni á annari hæð, og næstum spýta blóði í klósettið... Lét bara á engu bera og gekk stoltur um fyrirtækið.
Jæja þá er nú fasteignamálin að komast í einhverja mynd, það er við ættum að fá sölufyrirlit nú í kvöld, matið liggur fyrir á eigninni og fer yfir tuttugumills. Við erum sátt við matið. Og bíðum enn átekta. Höfum hinsvegar verið að viða að okkur upplýsingum um búslóðageymslu en þær eru ekki á hverju strái. Svo ef einhver veit um slíkt þá uppl. til míns :kristinn@c.dk en við eigum svolítið af dóti sem við ætlum að geyma áfram. Eins og bókin "Bekkurinn minn" sem ég hef geymt frá því ég var 8 ára. Gömul keðujubréf, úrklippur úr dagblöðum um Alþýðuflokkinn og ritsafnið um Andrés Önd og nokkrar matreiðslubækur sem móðir mín gaf mér þegar ég flutti að heiman. Allt hlutir sem verða geymdir áfram.
Nú ef einhver vill leigja herbergi undir ritsafnið ofl. hvaaa ekki spurning hafðu þá samband, elskan mín góða.
Býð trausta lesendur frá Bessastöðum-Suðurtúni velkomna til landsins úr Ameríku-reisunni. En það var svo sannarlega í traustum höndum hús þeirra hjóna meðan útivistinni stóð...Séra Jón frá Öryggistöðum sá til þess...og hækkaði um leið sölubónusinn, enda er hann búinn að kaupa sér nýtt húsnæði í Garðabænum og farinn að skoða jeppa.
Kristinn með öryggið á oddinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home