13.maí 1995 - 13.maí 2004
Við erum að tala hér um heil níu ár.
Í dag er 9 ára trúlofunarafmæli hjá okkur dúfunum í Skanderborg. Já það er ekkert minna.
Og ekki nóg með það því nú er að ganga í garð 13 árið saman í blíðu og stríðu. Logni og Stormi. Slyddu og él.....þrettánda árið hefst semsagt á morgunn....en það er gaman að segja frá því að þetta var allveg dottið úr mínu höfði í dag. Þar til ég sat hér við skjáinn og spurði frísörinn um dagsetningu dagsins...þá stóð ekki á svarinu " Nú það er nú stóri þrettándinn maður"
Það er bara einu sinni þannig að svo gróa þau sár sem gerð eru, það er vera rifinn frá móður sinni og gömlu fjölskyldunni í Breiðholtinu..og hefja sambúð......nei þetta var nú ekki gáfulega orðað. En svo maður miðli aðeins þá var alltaf eitthvað tilstand svona fyrstu tvö til þrjú árin, síðan eftir að bóndinn var ítrekað staðinn aðþví að ýmist gleyma deginum eða vera upptekin við eitthvað "gjörsamlegaalltannað".... ath. að frekari lýsingar á þessu "gjörsamlega allt annað" er ekki að hafa...því það hefur löngum verið sprengihætta í þeirri umræðu. En semsagt þá hætti allt tilstand...gæsapaté sem ég keypti á sínum tíma og þótti vont...blóm, og skrautmunir hverskyns heyra sögunni til....nú gleðst maður bara inní sér.
Jæja næstu þrettán árin að hefjast svo þetta er nú bara bjútifúl....hún minnir mig reyndar stundum á það að hún hafi borgað trúlofunarhringana....Æ hvað getur maður sagt. En við erum frábær saman...og það er nú fyrir öllu.
uhummm...leiðrétting frá síðasta pistli það var ekki Árni Tómasson sem var með punginn í hjólabuxunum líkt og þeir bræður....það átti að vera Helgi Tómasson. Títtnefndur Árni Tómasson er virðulegur endurskoðandi, og fyrrum bankastjóri Búnaðarbankans. Afsakaðu Árni.
Kristinn alltaf í sambúð.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home