laugardagur, maí 15, 2004

Laugardagskvöld.

Þá eru þau búin að gifta sig þessar elskur. Einhvern veginn finnst mér eins og við svona tilheyra orðið konungsfjölskyldunni. Já þetta er svo manneskjulegt fólk allt saman og bara svo yndislegt. Ég vildi að það væri danska hirðin sem réði ríkjum á Íslandi. Já það væri dejlig.

Nú fór á bóksafnið ég og Anna Marín á nýja hjólinu. Skiluðum geisladiskum sem við höfðum nýlokið við að afrita. Í borginni eru menningardagar, og við menningarhúsið var í dag mikið um hátíðarhöld. Það voru mikið börn og unglingar sem héldu uppi góðri stemmingu. Anna Marín kannaðist nú við fjölmarga og heilsaði borgarbúum.
Nú svo hjóluðum við heim upp Skólastíginn sem liggur hér meðfram húsunum. Hann er í miklum skrúða en við höfðum áður sett myndir af honum að vetrarlagi á heimasíðuna. Það er allt annað líf núna.
Axel Orri með lítilsháttar kvef og hósta. Svokallaðan helgar-hósta. Nei það er nú reyndar ekki í höfuðið á afa hans. Enda er það meira hnerri hjá honum. Svo hann var inni í dag að leika við móður sína.


Fáum endanlegt mat á íbúðinni okkar eftir helgi. Jammmm það er búið að söluskoða hana og meta, hátt og lágt. En maður er nú ekkert viss um að það eigi að selja....við eigum eftir að spyrja stjörnurnar. Annars gerir maður kannski alltof mikið mál úr þessu...það má alltaf fá annað skip...segir í frægri bók. Svo hvað er maður að væla.

Kannski seljum við allar okkar eigur, siglum um höfin á lítilli snekkju börnin fara í bréfaskóla og ég vinn sem trúður í sirkus Arena um alla Evrópu. Dagmar litar og snyrtir fólk og verður svona ferða-frisör. Yrði maður ekki víðsýnn fyrir vikið ????

Þegar við ákváðum að flytja út...þá sagði einn sem ég kannast við. Kristinn ég ætla að gefa þér heilræði, ekki segja við neinn að þú ætlir bara að hjóla, hitta fólk, labba um bæinn og vera afslappaðri þegar þú flytur til Íslands aftur. Ó nei þú lendir í nákvæmlega sama takti og þú varst í, dýrari, stærri flottari bíl...fljótlega kominn með einn þá kaupir þú annan. Stóra íbúð, bílskúr, stærra sjónvarp, leðursófasett, málverk. Tolli. Þetta verður pakkinn þegar þú kemur til baka. Við sjáum til..... jæja kominn tími á eitt Sáþern með klaka.

Kristinn þungur á brún.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter