fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Skólatöskur.

“Ég þarf að fá nýja skólatösku sagði Anna Marín, ég get bara ekki notað mína lengur”
Það rifjaðist upp fyrir mér að ég held að ég hafi fengið tvo..jæja kannski þrjá umganga af skólatöskum í gegnum grunnskólann. Svo ég fussaði bara og glotti við dóttur minni. Meistarinn var hinsvegar snögg að átta sig á málinu og sagði “ooo jáá það er svo óþolandi að hafa alltaf sömu töskuna” Já takk fyrir þetta mikill stuðningur hér. En það rifjaðist upp fyrir mér að ég var einmitt með skjaltösku þegar ég var í efri bekkjum grunnskóla, gamla slitna skjalatösku frá föður mínum. Sem hann hafði líklega notað í skólagöngu sinni, um aldamótin 19 hundruð. Skyndilega kom útúr meistaranum “já ég man, það voru einmitt alltaf Nördarnir sem voru með svona SKJALATÖSKUR, rosa smekklegt” takk kærlega segi ég nú bara. Og minnti hana á að ég hafi sérstaklega lagt mig fram um að halda þannig um töskuna að allir fingurnir nema einn væri utanum handfangið á töskuni. Meðan vísifingur, sá eini stóð beinstífur útí loftið svona til að halda við lokið á töskunni ef það skyldi óvænt opnast. Vísifingur var semsagt alltaf svona til hliðar. Hrikalega var þetta embættis og valdsmannslegt, JR hélt alltaf svona um töskuna sína á leiðinni útí bíl á Sáðfork.

Þessi uppstilling var bara akkurat svona eins og allir helstu biznesmenn héldu um töskurnar sínar. Og síðan sýndi ég þeim með látbragði hvernig þetta var gert.
Meistarinn og dóttirinn fussuðu ógurlega og hneyksluðust yfir þessum lýsingum mínum.

Og skyndilega rann upp fyrir mér skelfileg mynd, ég fékk flasbakk þarna sem ég stóð og lýsti þessu fyrir þeim. Mér fannst sem ég stæði við útihurðina í Breiðholtinu, í strau-uðum buxum, með vatnsgreitt hárið, bólugrafinn útum allt andlit, með rödd sem óvíst var hvort kæmi frá konu eða manni. Hendurnar þremur númerum of stór, og fæturnir ofvaxnir. Enginn voru þó gleraugun, guðisélof. En lúkkið hefur nú sennilega ekki verið sérlega kúúúl.

En ég er breyttur og betri maður í dag, og auðvitað kaupum við nýja tösku, ef dóttirinn vill ekki nota skjalatöskuna mína.

Kristinn Bisness.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter