miðvikudagur, ágúst 02, 2006

Letilíf.

Líður áfram lífið eins og ekkert hafi gerst. Við tókum okkur ferð ég og Meistarinn til Orhús í dag og kíktum á strikið. Þurrt og sól, og múgur og margmenni. Komum reyndar við í Háskólanum og hittum nágranna okkar og vinkonu hana Dorit sem vinnnur þar. Fengum okkur hádegishressingu með henni og ræddum um lífið.....þau voru einmitt að kaupa sér seglbát sem er til sjó-siglinga, svo það styttist í að maður haldi á hafið með þeim. Það verður spennandi. Þau keyptu hann niður í Haderslev og sigldu upp til Juelsminde. Eða til einföldunnar í Væle og sigldu til Horzens. Á íslenska vísu keyptu hann í Reykjavík og sigldu til Hvolsvallar. Tóku þrjá daga í þetta, sváfu í bátnum og prófuðu búnað og tæki. Þetta er átta metra langur seglbátur með öllum græjum. Þannig að spennandi tímar framundan. Það færi þó aldrei svo að maður fengi sér einn bát svona til gamanz.


Kristinn Kapteinn.

Counters
Web Site Counter