Magi Meistarans.
”Getur verið að þú hafir legið of þungt ámér í gegnum tíðina ?” Þetta var nú spurningin sem ég fékk framan í mig við kvöldverðarborðið...og ástæðan jú hármeirstarinn hafði farið í læknisskoðun og læknirinn Flemming hafði komist aðþví stærðarinnar kúla væri á leiðinni útúr maga meistarans...og ástæðan tja það hefur eitthvað legið þungt á’enni....eða hvað. Eftir að hafa kynnt mér þetta betur og gengið á meistarann kom í ljós og hún viðurkenndi að sökin væri ekki mín nema að litlu leyti. Hinsvegar væri hér á ferðinni einhverskonar magaslit eða skjúkdómur sem líktist helst kviðsliti. Og það þarfnaðist lækningar við ekki síðar en núna. Meistarinn hefur nefnilega haft þessa kúlu á maganum fyrir ofan nafla í þónokkurn tíma, já bara nokkuð langann tíma finnst mér.
Lengi vel hélt ég að þriðja barnið væri á leiðinni en þegar ég lagði saman tvo og tvo mundi ég að sökum óþæginda í kúlunni í gengum tíðina þá væri það afar og sérstaklega ólíkleg...vegna þess að öllu samneyti af slíku tagi hefur verið hafnað og lauk í raun fyrir löngu síðan þegar setningar eins og “ææi ekki núna, er svo ílt í kúlunni” og það byrjaði fyrir fjórum árum en þá kom kúlan...já kviðslitið eða magaslitið ku hafa gerst á meðgöngunni síðustu og brostið út sennilega þegar meistarinn fór á hinn alræmda “kílóatabara” sem áður hefur verið minnst á.
Meistarinn kom heim í gær eftir fjögurra tíma innilegu á sjúkrahúsi Silkiborgar. Svæfing, svefnlyf,deyfilyf og töflur. Ég aðstoðarmaðurinn og hjúkrunarfræðingur og læknir að innsæi hjálpaði til að lokinni aðgerð. Meistarinn skyldi nú keyrður heim, og þar sem hún gengur útaf sjúkrahúsinu með aðra höndina um háls mér og hina um mjöðm. Göngum við tvö á móts við Svarta Ljónið, í leiðslu...tvö gamalmenni hönd í hönd. Hann þónokkuð unglegri í háttum og göngu, hún sem ellihrum væri ,haltrandi,svitnandi og svimandi á leið heim...með mér.
Þegar heim er komið stígur Meistarinn inn um dyrnar, fær aðstoð úr skónum, fær aðstoð úr jakkanum, fær aðstoð við “leggjasigútaf”. Hún sefur nú litla skinnið, með saman saumaðan magan. Það færi þó aldrei svo að maður fengi tíma í rúmfræði eftir fjögurra ára útilokun og höfnun, sökum óþæginda í kúlunni. Hvenær á að taka sauminn elskan ?
Kristinn Heimahjúkrun.

2 Comments:
Kristinn,
Þú ert mjög skáldlegur - þú ættir kannski bara að verða rithöfundur og skrifa bók. Þú ert líka ótrúlega nákvæmur og greinir satt og rétt frá öllu - amk vona ég það - ... og svo er líka sumt í þínu lífi sem mig langar líka ekkert til að vita um....!!! :-)
Unnur Ýr !
Takk kærlega...fyrir línurnar Það er mikilvægt að maður segi satt og rétt frá já eða þannig..sko... Maður á ekki að halda neinu fyrir sig. Við erum öll manneskjur og öll eins :-)
Ég sendi þér ritskoðuðu útgáfurnar af pistlunum....síðar....þú hefðir bara gamanaðíí
kv
Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home