Sumir dagar.
Ég missti af lestinni í skólann í dag. Já ég kom of seint, lestin brunaði frammhjá á ógnarhraða, Midnight Express, Austurlandahraðlestinn Skannebooo- Orhús. En það var ekki eina. Við vöknuðum bæði ég og sambýlingurinn bárum saman drauma okkar. Ég hafði ákveðið að fara í formannsframboð til Samfylkingarinnar, einhver myndi segja að þetta hefði verið martröð en þetta var bara notalegur draumur. Ég og Össur ræddum málin, hann ætlaði ekki að fara fram svo ákveðið var að ég tæki slaginn...við Eyþór Arnalds...ekki meir um það.
Axel Orri vildi þennan morguninn ákveða í hverju hann yrði, ekki hvort hann færi í stígvélum eða strigaskóm. Ónei, valið stóð um spædermannnærbuxur, bangsímon nærbuxurnar eða Disney buxurnar. Hann gat ekki valið svo hér í morgunsárið sagði faðir hans að hann skyldi bara fara í spædermannbuxurnar og ekki orð meir. Hann hefði ekkert val..og það fór sem mann grunaði að grenjaði og grenjaði undan þessari kúgun og ónógu valfrelsi í nærbuxnavali. Við losuðum okkur við hann fljótlega í leikskólann en systir hans hafði þegar hjólað í skólann.
Fyrirlesturinn sem ég sat í dag var ömurlegur illa undirbúinn fyrirlesari tönglaðist á hlutum á ensku með þýskum framburði, enginn skildi neitt og í hléinu fór ég heim. Sótti drenginn og fór heim. Heima, Axel Orri vildi fá kex en ekki brauð, grenjaði svolítið yfir því. Datt síðan af stólnum sínum niður á gólf, grenjaði meira. Stóð upp jafnaði sig en datt síðan aftur núna af eldhússtólnum í kvöldmatnum. Dagmar kom heim örþreytt, hafði fengið ofdekraðan danskan krakka sem vildi ráða því hvernig hann yrði klipptur, hvort notuð yrði skæri eða vél. Dagmar tók málið í sínar hendur og sagði hann réði engu um þetta (kúnnin var sjö ára) hún klippti hann og rukkaði fullt gjald.
Bíllinn varð rafmagnslaus, neitaði að slökkva ökuljósin. Líf hans fjaraði því út smátt og smátt. Anna Marín sá ljós reyndar á bílnum þegar hún hjólaði heim. Taldi það bara eðlilegt eða að sólin hefði glampað á húddið svo það var eins og ljós laogaði...sagði bara engum frá og allir biðu...Bíllinn steindauður...fór til nágrannans sem lánaði mér maskínu til að hlaða geyminn, bíllinn malar nú sem aldrei fyrr er kominn með straum og stuð í hjarta.
Ég hafði ekki lyst á öl eða hvítu í kvöld...fór bara snemma í háttinn. Hefði þurft uppörvandi stuðning frá almættinu. Hugleiddi að klæða mig í gallann en hætt við. Sumir dagar eru bara svona. En á morgun kemur nýr dagur, nýjar væntingar og vonir. Það er liðið sem liðið er....nei nú hefur kappinn fengið sér einn kaldann...ég stoppa bara hér.
Kristinn Klaufi.

1 Comments:
Formannsframboð og framtíðin.
Ingibjörg á Alþingi
B = Bryndís Hlöðvers
I = Ingibjörg Sólrún
F = Forsætisráðherrastóll
R = Runólfur skólameistari
Ö = Össur Skarp
S = Samfylkingin
T = Tilfærslur og tiltekt( ef ekki með góðu þá með frekju )
Skrifa ummæli
<< Home