laugardagur, maí 29, 2004

Dagmar fær vinnu.

Já fyrirsögnin segir allt..takk fyrir og bless.

Nei nei nei....nú dregur til tíðinda í stórborginni, Dagmar Frísör hefur verið boðið að hefja störf á Salon BACH (báðum stofunum, það er sami eigandin af tveimur stofum), já það er ekkert minna. Hún fór í samtal ti þeirra í vikunni og var ákveðið að hún skyldi mæta í gær kl:1300 að staðartíma. Síðan birtist fyrsti kúnninn og mín kona, upp með skærin, sjalið og frumleikann. Og síðan var bara hver kúnninn á eftir öðrum klipptur. Ýmsar útgáfur og ég veit ekki hvað og hvað. Þær svona alsælar með þennan frísör frá Íslandi og buðu starfið. Nú er það minnar að ákveða hvað gerist næst.

sendið óskir um frekari upplýsingar á: dagmarosk@torg.is

Við fórum síðan í fyrrakvöld í frístundaheimilið sem Anna Marín hefur verið í núna frá því skólinn hófst. En þar sem hún er að stækka þá færist hún ásamt sínum bekk yfir í unglingadeildina. Og það kallast nú Frítíðs-klúbburinn. Við fengum miða um að koma með grillmat og eitthvað að drekka og síðan átti að grilla saman. Það var bara ekkert annað en það að við stormuðum þangað því fyrr um daginn hafði húsmóðirin keypt þessa dýrindis útileigukörfu. Mér leist nú ekki á þetta og spurði hvort þetta væri nú ekki heldur mikið....en viti menn, hver einasti kjaftur kom með sína körfu, rauðvínsflöskur, hvítvín eða bjór. Soda/gos fyrir börnin og úr varð þessi þvílíka huggulega stemming við grillið. Já maður hefur bara ekki upplifað annað eins. Við fórum með 4 bjóra sem ég faldi svona undir dúkknum í körfunni....þangað til ég sá hvað hinir voru með. Og síðan gekk ég bara til þeirra allra og fékk sopa og lánaðan bjór og svona þegar ég var búin með mitt.....nei ég gerði þetta nú ekki...en hefði betur tekið með mér kassa. það hefði verið viðeigandi. Sást ekki vín á nokkrum manni, ólíkt því sem myndi gerast í fjölskyldugrilli á Íslandi þar sem flesir væru dauðir áfengisdauða áður en kæmi að forréttinum..maður þekkir það nú aldeilis...ættarmótin í báðar ættir ha ha ha ha ..Æææ maður er orðinn svo danskur...

Klúbburinn já við áttum nú eftir að verða hrifinn, þannig er að krakkarnir/unglingarnar hafa þarna líklega 400 fermetra hús sem er innréttað með snókerborði, tölvuveri, saumaherbergi, hljómsveitarherbergi (með rafmangsgítörum, hljómborði, trommusetti og ég veit ekki hvað og hvað) Nettengdar tölvur liklega einar 10 vélar, þar sem liðið getur spilað hvert við annað. Saumaherbergi með nýrri Óverlokkkk vél og vel útbúin aðstoða þar sem þau geta saumað á sig föt. Stór fótbolta og korfuboltavöllur afgirtur, sem verður notaður sem skautasvell á veturna. Gó-kart bensínbílar sem notaðir eru á sérbraut, nokkur borðtennisborð, playstation, videó-og sjónvarpsherbergi. Innanhúss hokký- og línuskautavöllur...Og hvaðeina sem krakkar á aldreinum 10-18 ára geta hugsað sér að gera. Þetta var ríkulega útbúið og ekkert drasl. það er greinilega gengið vel um þetta og krakkarnir sýna þessu mikinn áhuga. Við vorum alsæl eftir heimsóknina og Anna Marín hefur verið skráð í klúbbinn.

Matarboð í gærkvöldi:
Hingað komu okkar fyrstu danir sem við kynntumst í landinu. Dorrit og Torbin ásamt börnum. Við elduðum hér steik og höfðum þetta mjög huggulegt hér frammeftir kvöldi. Þau komu um sexleytið (bara rétt eftir frísörnum sem kom úr vinnunni) og fóru héðan um tvöleytið. Okkur tókst að fá mikilvægar upplýsingar um ódýr áfengis og bjór innkaup í Þýskalandi, en þangað munum við fara eftir ekki svo langann tíma.

Sólheimarnir.
Það eru 6 búnir að skoða og hafa sýnt íbúðinni áhuga. Við höfum ekki fengið tilboð ennþá en það styttist vonandi í það. Helgi faðir brúðarinnar....nei þetta var bara grín. Faðir hennar Dagmar hann hefur útvegað okkur geymslupláss fyrir það sem er á Ísalandi...svo það fór miklu betur en áhorfðist á tímabili. Það var mikil gleði með það í Rósenkjærvej.

Axel Orri og Anna Marín.
Nú gerðist það í gær að Anna Marín varð að sækja bróður sinn til dagmömmunnar og það gekk gríðarlega vel þótt foreldrarnir hefðu nú nokkrar áhyggjur af því dæmi. Það er smá spotti til hennar. En Anna Marín reddaði þessu flott. Ég hjólaði síðan eins og geðsjúklingur heim og lá venju samkvæmt við yfirliði. Og þá voru þau komin heim og Anna Marín að gefa bróður sínum að borða. Já þetta er að verða sannkölluð lyklabörn. Hann fór í afmæli hjá Emmu sem er með honum hjá Lælu. En í næstu viku verður hann að fara til gestadagmömmu þar sem Læla verður í fríi. Það verður fróðlegt að sjá hvernig það gengur.

Jæja þetta er nú orðið æði langt og óvist hvort nokkur hafi úthald í lesturinn nema hún Amma mín í Bogahlíðinni. En svona er þetta nú.

Kristinn Grillandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter