Meistarinn í Stórhættu.
Ég verð að bæta við pistil dagsins. Þegar Meistarinn hafði lokað fyrirtæki sínu í dag og hélt heim á leið...þá gerðist það. Þar sem Meistarinn skellir í lás, berast gríðarleg örvæntingar öskur um hverfið. Meistarinn labbar áleiðis og skyndilega stendur hún í miðri atburðarrásinni. Hettuklæddur maður birtist skyndilega fyrir framan hana, og öskrar. Já bara öskrar af mikilli ókurteisi....”drullaðu þér frá”....Meistarinn sem er nú langt undir hundrað kílóunum gat ekki annað en hrökklast frá. Hörfar hún snarlega og lítur í næsta búðarglugga, standa þar þrjár afgreiðslukonur, ein alblóðug og glerbrot útúm allar jarðir.....Hinn hettuklæddi hafði nýlokið við að rupla og ræna eins og gerist í rjómabúð......öskrandi eigandi Gull & Silfurbúðarinnar birtist nú skjálfandi í andyrinu skimandi eftir hinum hettuklædda sem nýlega hafði öskrað á Meistarann.....Stekkur hin geðvondi þjófur nú á hjólið sitt og hjólar sína leið öskrandi á aðra vegfarendur að andskotast í burtu......Ég hef nú blandað sterkt í glas fyrir Meistarann enda þótti henni þetta alll nokkuð óþægilegt. Kem ég að öllum líkindum til með að veita henni áfallajálp opg og hver nema sú hjálp vari eitthvað frammeftir kvöldi.....En það er ljóst að starfsmenn Gull & Silfurs sofa ekki vel í nótt.

1 Comments:
http://jp.dk/indland/aar/article1260213.ece
Skrifa ummæli
<< Home