Unglingar.
Umræðan hér í landi og á heimilinu hefur snúist aðeins um unglingadrykkju. Þegar danska alþingið ræddi um að hækka innkaupaaldurinn á áfengi úr 16 ár í 18 ár nú fyrir nokkrum dögum. Sögðu þingmennirnir það ekki ganga. Hreint ekki. Ástæðan jú “hin danski kúltúr samþykkir það ekki, danskir foreldrar samþykkja það ekki”. Og það varð til þess að ég gekk á meðstjórnendur mína í unglingabekknum og spurði hvort það væri rétt að dönsk menning og afstaða foreldranna væri sú að aldurstakmark áfengiskaupa ætti að vera 16 ár en ekki 18 ár. Urðu þau nú nokkuð hvumsa við en af sex stjórnarmeðlimum (voru þrír á móti og þrír með því að hækka aldurinn, ég meðtalinn. Það semsagt verður ekki hækkað aldurstakmarkið hér í landi í bili amk.
Danskar fyllibyttur finnast víða og á hverju ári eru “pumpað & dælt” brennivíni uppúr tvö þúsund unglingum á slysavarðstofunni vegna ofdrykkju og drykkjukeppni. Við hjónin horfðum hér á danska heimildarmynd frá 2006, þar sem unglingar í GRUNNSKÓLANUM voru á leiðinni á skólaskemmtunn. Unglingurinn á heimilinnu þá 15 ára drakk 12 til 14 bjóra áður en hann fór á skemmtunina, og síðan keypti hann fjóra á skemmtuninni. Og fékk síðan eldri vini sína til að kaupa “skot”. Mamma hans sem kom í viðtal sagði: “usss ég er nú ekki hrifinn af þessari brennivínsneyslu en hva, ef strákurinn fær sér nokkra bjóra, verður þetta þá ekki í lagi?” Nákvæmlega......látum þá unglingadrykkju eiga sig um stund.....en þá er það hitt málið.......sem hefur orðið til þess að ég hef aukið lyfjaskammtinn minn verulega af róandi.......
Ég hef ekki bara heyrt heldur fengið staðfest sögur úr Reykvískum unglingaskólum. Gömul saga í nýjum búningi......Fyrir tveimur árum fékk ég mjög nákvæmar lýsingar af því að inngöngumiðinn í bekkjarpartí í heimahúsi í Grafarvogi var sá að húsráðandi sem þá var 14 ára fékk, að honum fannst ánægjulegar og metnaðarfullar....“munngælur” fra unglings-stúlku gestunum.....einmitt....og ef þær voru af góðu tagi var gestunum velkomið að ganga í hús....annars ekki.....OKEY.....ég sgil.....nýjasta sem ég hef ekki bara heyrt heldur fengið staðfest....er að í grunnskóla í Reykjavík hafa komið upp mál, þar sem herramenn þetta 13 til 15 ára. Fái bekkjarsystur sínar til að framkvæma munngælur af bestu gerð á klóssettum skólans. Slíkar aðfarir koma viðkomandi ekki bara í sjöunda himinn heldur nánast í dýrðlingatölu.....Þetta er allt orðið svo afbakað og fáranlegt að maður veit varla hvað hægt er að segja.....eða svo ég noti bókartitil á gamalli unglingabók og leiti kannski skýringa þar...."þegar ástin grípur unglinganna"
Kristinn Foreldri.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home