Jólatónleikar og Hangikjöt.
Fórum í gærkvöldi á jólatónleika með Stíg Rossenn (www.stigrossen.dk) sá gat nú galað, eða þannig. Annars var ég nú ekkert alltaf ánægður með tónleikanna þótti hann svona helst til kraftlaus. Stíg þessi hefur sungið 1.500 sinnum hlutvek Sjon ValSjon í Vesalingunum í London. Þannig að hann er jú þokkalega öflugur, gefið út fullt af plötum og er bara jú jú þokkalegasti fír. En þetta var sko enginn Bubbi eða Bó....
Á morgunn verður farið að höggva jólatréð en við ætlum með dönskum vinum okkar til jólatrés-bóndans sem hefur útvegað okkur skóg til að höggva tréð. Á eftir ætlum við að bjóðum þessum vinum okkar í íslenskt hangikjöt, laufabrauð, rauðkál og allt sem íslenskt er malt og appelsín og athuga hvað þeim finnst um þetta. En eins og ég hef áður nefnt hef ég sérstaka andúð á hangikjöti og borða það ekki nema í neyð.... Og ástæðan er jú líklega þessi:
Móðir mín þá ung af árum ákvað í hádeginu fyrir tugi ára síðan að ungur sonur hennar það er ég, skyldi nú fá mér middagshrezzingu. Ákvað hún að það skyldi vera brauð með gúmmúlaði og áleggi. Setti hún nú heilhveitibrauðsneið á borðið og hnausþykka hangikjötssneið ofaná brauðið. Þetta var í desember á sjöunda áratugnum. Snjórinn féll niður og skammt var til jóla. Sagði hún nú ungum syni sínum að borða brauðið og drekka mjólk með.
Gaddaði ég þarna í mig hangi-kjetsbrauðið en þar sem ég var kominn inní hálfa-brauðsneiðina með kúf-fullann munninn, kyngdi ég hangikjötinu og viti menn, stendur ekki blessað hangikjötið í mér. Verður nú uppi fótur og fit í eldhúsi móður minnar sem telur allar líkur á því að blessað barnið kafni innan skamms....Kúgast ég þarna á eldhússtólnum og ranghvolfi augunum. Móðir mín í móðursýki slær þéttingsfast en þó fimlega á bakið á mér, svo brauðið sezt nú kirfilega fast í hálzinn á mér.
Ég sé ljósið og fallega engla......bregður nú svo við að móðir mín rýkur með hendina ofan í kokið á mér og seiliszt þar eftir hangikjetsbitanum. Fyrir kraftaverk nær hún, aðþví er virtist í spotta eða örðu af kjetinu. Dregur hún nú þennan spotta útúr munni mínum og allt það hangikjöt sem á brauðinu var....Var nú spottinn kominn þarna í tuttuguogátta sentimetra ræmu sem hafði stöðvað alla kyngingu. Ég náði fljótlega mínum rétta huðlit aftur en hangikjöt hef ég ekki étið síðan nema hakkað. En það má Guð vita að svo lítið sem hósti matargestirnir á morgunn skal ég sko berja þau í bakið.
Kristinn Saddi.

3 Comments:
Ja hérna.
Við móðir þín vorum að lesa þennan pistil. Allt í einu fóru tárinn að streyma niðu kinnar hennar og sína kom guð minn góður og svo sló hún mig þéttings fast í bakið og skelli hló og ég barðist við að ná andanum.
Kveðja Bakkasel 1
Sæll frændi.
Skrifaðu fleiri svona sögur.´Gruna að það hafi verið bölvaður barningur hjá móður þinni að koma matnum ofan í svona óþekktar anga.
Kveðja Faðir andanna.
Tilheyrendur....já það er hvergi slegið slöku við það er víst ábyggilegt. Já þú segir það barningur, onej atli þa, ég er rómaður fyrir að borða hvað sem er og mat-styggur hef ég aldrei verið.
Takk fyrir skrifin,
Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home