Gleðileg Jól.
Þá er ilmur jólanna kominn í hús og hátíð ljóss og friðar genginn í garð. Hér hefur maður nú óskað nágrönnunum gleðilegra jóla og brosað til hinna. Já sannur jóla-andi. Annars gerði ég þó skammastrik í búðinni í gær en þar var glaðhlakkalegur ungur afgreiðslumaður sem greinilega var kominn í jólaskap. Hann hrópaði og kallaði á eftir öllum sem í búðina komu “Gleðileg jól”...”vonandi áttu gleðileg jól” og ég veit ekki hvað og hvað. Þegar hinsvegar kom að mér við kassann, eftir að hann hafði afgreitt konu á miðjum aldri. Sagði hann “gleðileg jól” með glaðhlakkalegri röddu. Ég snéri mér að honum og sagði með steinrunnið andlitið “Við höldum ekki jól”. Skyndilega heyrðist í konunni á undann í röðinni “O, O óó...ups..” Og kassadrengurinn varð blóðrauður í framann og skammaðist sín mikið. Byrjaði hann nú að stama og hiksta en ég sagði fljótlega við hann “sömuleiðis gleðileg jól, auðvitað höldum við jól”. Já þetta var ljótt en í fjölmenningarsamfélagi þar sem annarhver maður heitir Achhmeð og Vítúsan er ljóst að ekki halda allir jól. Og þótt maður tilheyri ekki þeim trúarhópi sem heldur ekki jól. Getur maður sömuleiðis átt jól sem eru jól vonbrigða, einmanaleika og söknuður. Því fólki sendi ég sem og góðum lesendum síðunnar mínar bestu jólakveðjur.
Kristinn Jólabarn.

1 Comments:
Sæll Kristinn.
Alltaf sami jólaálfurinn, en ég óska þér og fjölskildu þinni gleðilegra jóla og þakka fyrir góðar jóla sögur í skammdeginu Kveðja Guðmundur Kristinsson.
Skrifa ummæli
<< Home