mánudagur, janúar 21, 2008

Partíhelgi.

Það er ekki úr vegi að rifja upp stöðuna, maður er bara búinn að vera undir svo rosalegu álagi að annað eins hefur ekki gerst. Ég hef þurft að hlúa bæði að krökkunum og Meistaranum, líkt og áður. En maður fær nú líka sína skemmmtannn....var einmitt sl.föstudag með hinum stjórnarmeðlimum foreldrarráðsins að halda veislu fyrir unglingabekkinn hjá Önnu Marín. Og auðvitað átti ég flestar hugmyndirnar....”Hvað meinarðu” sagði ein konan í stjórninni...”er til hvað ????” augnablik huxaði ég og sagði svo “jú jú það er bara búð sem selur eingöngu Diskóljós, hva heldurru kona” og hún fölnaði upp og átti ekki orð að það fyndist slík verslun....Kommonnnn... Nei sumir eru náttúrulega ekki með. En hugmyndin sem ég kom mað að unglingakvöldinu var samþykkt einróma á stjórnarfundi fyrir nokkru og nú kom að framkvæmdinni. Ég keypti BlackLight, sem ertu svona últra-fjólublá ljós sem gera það að verkum að allt sem hvítt er lýsist upp og verður sjálflýsandi í myrkrinu....þetta þótti bara snigggld. Síðan keypti ég eitthundrað neonljósa-armbönd handa öllum. Og það var ekki að sperja aðþví veislann hepnnaðist glimrandi vel. Flestir mætti í hvítum fötum sem lýstust upp eins og geimverur... Dagskráin var líka þannig að drengirnir fóru í Laser-game fyrr um daginn (laser-paintball), og stelpurnar fóru í Make-up. Og síðan var partý um kvöldið þar sem við höfðum skreytt salinn, og síðan kom ljósmyndari og stillti upp prófessional myndastúdíói og tók myndir af öllum. Það slóg bara í gegn.

Kristinn Skipuleggjandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter