sunnudagur, september 03, 2006

Hentu í mig hamrinum.

"Haltu hérna í þetta steypustyrktarjárn” (sem er ein tomma í þvermál og 1,20 metri að lengd, og er ca. 20 kg þyngd) þetta sagði forstjórinn í fyrirtækinu sem ég er að vinna hjá við hinn tímabundnastarfsmanninn. Starfsmaðurinn og forstjórinn hjálpuðust síðan að með að berja þenna Risa prjón ofan í jörðina með sleggju. Eitthvað fannst starfsmanninum forstjórinn ekki slá nægilega vel ofaná járnið með sleggjunni. Svo hann teygði sig í áttina að járninu, í sömu andrá tók forstjórinn sleggjuna á loft, og sló þéttingsfast en þó fimlega á steypujárnið.....en hendinn á hinum varð á milli.

Það næsta sem gerist er að tímabundni starfsmaðurin rekur upp þetta svaðalega öskur, líkt og í Tarzan mynd væri, öskrið mynti á frumskógarljón, háværa óperusöngkonu og miðaldra karlmann sem sleginn hefur verið í pjúnginn...allt þetta hljómaði sem einn hljómur útúr munni starfsmannsins. Það glumdi um hverfið.

Þarna stóð starfsmaðurinn með alblóðuga hendi, forstjórinn í sjokki og spurði...”er einhver hér á bíl?” Það kom í minn hlut að keyra starfsmanninn á sjúkrahúsið, alblóðugann, en í skottinu fann ég Bilka innkaupapoka sem hann notaði og lét blóðið dreypa í ......í skelfingarótta um að bíllinn yrði nú allur í blóði keyrði ég sem óður væri á sjúkrahúsið og bað starfsmanninn að sitja kyrrrrann. Ekki blóðslettur útúm allann bíl takk.....afsakaðu sagði starfsmaðurinn um leið og hann spurði mig hvort hann gæti hallað sætinu, hann væri að líða útaf....kræsturinn....ég jók hraðann....hann sagðist líka þurfa að pissa, en ég hló bara taugaveiklunarlega að því, átti ég að fara hjálpa honum með það....vallllla...... Sjúkdómsgreiningin kom löngu seinna frá doktornum eftir langa bið. Þríbrotinn vísifingur hægri handar, með góðri saumsprettu uppá sjö spor. Gifsaður í fatla næstu vikurnar. Vinnudeginum lauk síðan án frekari áfalla. Ég ætla ekki að halda næst. Ég fékk mér sérrístaup þegar ég kom heim.

Kristinn Sleggja.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter