Helgin.
Vorum með lítilsháttar matarboð í gær, þar sem við æfðum það sem Guðmundur kokkur hafði kennt okkur hér í síðustu viku. Morten og Marlene komu hér í mat ásamt börnum sínum tveimur. Það var huggulegt. Þau sögðu okkur frá því að þau höfðu keypt sér hús. Já þau fá afhent núna 15. nóvember og flytja fyrir jól. Þau flytja í lítinn smábæ hér svolítið frá okkur eða svona 20 mínútur akstur.
Við keyrðum þangað og skoðuðum svæðið í dag, og leist bara ágætlega á. Töluvert ólíkt því sem þau hafa í dag, en þau búa einmitt í húsi sem var byggt eftir ca 1800 og er í elsta hverfi Skanderborgar. Svona minnir nokkuð á Árbæjarsafnið eða elstu byggðir hér í Danmörku. Það er helst í litlu bæjunum sem verðið hefur haldist í jafnvægi en þetta er hús sem er 150 fermetrar og fór á milli þrettán og fjórtán milljónir ísl.
Við í slökunn í dag, sjónvarpið og tala saman. Já sunnudagsstemming. Atli maður skelli ekki vöflum á fóninn.
Kristinn Sondei.

2 Comments:
Smá matarboð hjá ykkur eru sko engin SMÁ matarboð. Var að velta því fyrir mér hvort Axel Orri hefði ekki örugglega saxað niður grænmetið með stóra hnífnum, eða lentu föðurfingur hans saman við kálið. Á að fara fjárfesta í nýju húsi í litlum bæ ífriðsæld og fjósaangan ? Bara datt þetta sv....
Bestu kveðjur efrir langa fjærveru
Amain
Hej !
Axel Orri hefur ekki snert grænmetishníf eftir að Guðmundur fór..svo það er búið. Smá og Stór matarboð...tja hvað skal segja....maður er nú alltaf svo hógvær í orðavali. Fjárfesta í Danmörku, nei það verður ekki gert. Hef hinsvegar lengi dreymt um sumarhús með víngarði í virðurlegu héraði á Ítalíu svo ég tali nú ekki um Sikiley. Sem er kominn inná radarinn til ferðalaga amk til að hitta Herra Korlíóní Mafíósó (Guðfaðirinn sjálfur)...hver veit.
Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home