Fyrsta íbúðin.
Ég man hvað ég var hrikalega ánægður þegar ég flutti inní mína eigin íbúð. Já maður gat allveg gleymt sér, og farið uppí himinhvolfið í vangaveltum um innlit og útli um það hvað maður ætlaði nú að gera. Hérna átti þessi skápur að standa, bora í gegnum þennan vegg til að tengja græjurnar og bara endalausar hugleiðingar. Síðustu kvöld hef ég verið að hjálpa vinum okkar Morten og Marlene að setja í stand þeirra hús. En þau fengu það afhent sl.þriðjudag. Húsið sem þau keyptu er miklu yngra og nýrra heldur en það sem þau búa í núna. Já hann sagði mér einmitt að það væri eiginlega bara splúnku-nýtt miðað við hitt. En það er hundrað árum yngra, byggt átjánhundruð og sjötíu. Þau búa í húsi sem var reist 1770.
Og þar sem ég hjálpaði þeim, fann ég og heyrði þegar Morten fór á flug, með innlit og útlit á húsinu sínu. Rétt eins og ég gerði. Já þetta er góð tilfinning sem í raun dofnar ekki fyrr en afborgunin af láninum kemur innum bréfalúguna.
Ég málaði þarna fyrir þau nokkra veggi. Þau voru himinlifandi með vinnubrögðin enda vanur maður á ferð, sérstaklega í málingarvinnunni. En ég hef t.d. málað margoft fyrir tilv.mág minn og þar hefur aldrei verið kastað til hendinni, hvorki í efnisvali né vinnubrögðum (Það var ekki ég sem skildi eftir ómálaðan blett í loftinu).
Jú og hann hefur nú líka litla skinnið verið liðtækur að mála hjá mér.....en heimtaði alltaf bjór fyrir. Reynsla sem ég bý að og gerði það sama hjá Morten í þessari törn.
Kristinn Málarameistari.

3 Comments:
It Takes A Village To …
Listen to a podcast version of this newsletter In This Issue: 2. Today's Top Story 3. Breaking News - IBM Claims Better LED - IBM Acquires Change-Management Firm 4. In Depth: Personal Tech & Reviews - Personal ...
Find out how to buy and sell anything, like things related to road construction of pa on interest free credit and pay back whenever you want! Exchange FREE ads on any topic, like road construction of pa!
Hver hefði trúað því sem þekkti til æsku og unglingsára stjórnmálafræðingsins að hann tæki að sér að mála og hefði GAMAN AF ÞVÍ. Bingó og Gröndal Hólý bananas með bambus. En svona er nú lífið í dag. kveðja úr Bládýpi: Doggý
Sæl Doggý !
Sko ég hef áttað mig á því og er hættur að mála mig útí horn. Svo útrásin og tilfinningin er einstök. Hver man ekki eftir laginu og textanum: Ég skal mála allann heiminn gamla amma....
kv. Kristinn.
Skrifa ummæli
<< Home