13.maí.
Það hefur mikið gengið á síðustu vikurnar og ekki verið mikill tími til að skrifta fyrir Guði eða mönnum. Anna Marín varð fullorðin 1.maí sl. með tilheyrandi bravúúr. Já barnið blessað fermt og orðið Krist-ið. Héldum hér tuttugmanna veislu að dönskum sið fyrir utan allt áfengissötrið sem við hoppuðum yfir. Já það er ekki hægt að hafa slíkt þegar fólk mætir til veizlu. Lang-amma barnsins heiðraði hana með nærveru sinni sem gladdi okkur öll. Já það eru forréttindi að eiga langömmu sem kallar ekki allt ömmu sína. Hún mátti stundum ekki vera aðþví að spjalla vegna þess að hún þurfti að lesa sms-inn eða svara gemsanum, já eða stökkva út og fá sér eitt “blys”. Amma er ótrúlegt. Verður 90 ára eftir nokkur ár.
Hef farið í gegnum ótrúlegar geðsveiflur í vinnunni þar sem ýmist svartnættið eitt blazir við eða gleðinn ein. En gleðin er jú besta vímann.....á tímabili var útlit fyrir heimsyfirráð eða dauða...en nú eru bara heimsyfiráðin sem komast að.... já það er amk létt yfir timbursalanum um þessar mundir það verður ekki annað sagt. Enda gengið frá nýjum samningi í dag 13.maí.
Það ætlar mér seint að bregðast dagurinn 13.maí, bónorðið 1 árs, bíllinn er 3ja ára í dag, salan á draumabílskúrnum 4ra ára, fyrsti kossinn 16 ára...Er lífið ekki dásamlegt. Í kvöld kyssi ég Meistaran undir furutrénu stóra í Skannebo Skóg.
Kristinn BaráUppleið.
0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home