föstudagur, september 22, 2006

Helgarpistill.

Hvar á að byrja já það held ég nú. Nú erum við í þeim farvegi að safna upplýsingum um rekstaráætlanir og rekstur fyrirtækja. Meistarinn er á fullu í vinnu, en vinnuveitandinn er víst komin í sálfræðimeðferð vegna streitu og álags. Hún finnur engann til að vinna í stað meistarans sem senn hættir störfum. Já það líða dagarnir... Nú hefur eigandinn tekið á það ráð að auglýsa á Strætó eftir fólki. Já svo nú er keyrt um göturnar með Ósk um starfsfólk.

Ég er kominn á fullt í námið. Og svona aðeins farinn að ræða við bekkjarsystkinin og þá gildir að vera diplómatískur og hlusta á ólík sjónarmið....og og...kannski bara bakka fimlega útúr sínum fullyrðingum og vangaveltum þegar maður hittir einhvern af öðru sauðahúsi.....ikk’os (lesist “er það eggi”). Ég sagði við danskann samnemanda minn, vingjarnlega stúlku. “Heyrðu finnst þér ekki merkilegt hvað kennarinn getur talað í þessu fagi hérna, hann er núna búinn að halda fyrirlestur í þrjá tíma stanslaust, tekur aldrei spurningar, hefur ekkert hlé og nemendur fá ekki að segja orð og síðan eru þessar kenningar frá gömlu spekingingum nú kannski ekki það ferskasta í faginu þetta frá árunum 17 og 1800..humm hvað segir þú ?

Og svarið “nei það finnst mér ekki, þetta er einmitt sú aðferð sem mér finnst best, mér finnst ekkert gott að hafa of miklar umræður,það er tímaeyðsla, heldur bara svona fyrirlestur frá kennaranum og mjög ákveðið, hann veit bara svo mikið...þurrt efni...nei þessar kenningar eru BARA svo spennandi....þegar ég verð búinn með BA prófið og kandidatsprófið þá ætla ég beint í doktorsnámið, kærasti minn er einmitt í doktorsnámi núna, já þetta er bara allveg æðislegt”

Ég einhvernveginn þá tilfinningu að ég og hún munum ekki vera mikið í hópstarfi, saman þessa önnina.

Kristinn Áekkiaðverahlé.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter