laugardagur, desember 31, 2005

Gleðilegt ár.

Árið hefur verið okkur gott. Þótt árið hafi ef til vill einkennst af veikindum og ferðalögum já bæði gleði og ógleði. Við sjálf höfum náð að aðlagast enn meir því samfélagi sem við búum í og líður vel. Við höfum fengið margar heimsóknir á árinu, þótt eftirminnilegast hafi nú borið heimsókn ömmu minnar (verður 80 ára á nýju ári) sem kom hingað ásamt foreldum mínum. Okkur tókst síðan að ferðast mikið á árinu, Dagmar og Axel fóru til Íslands í janúar, Dagmar til London í mars og svo fórum við öll til Parísar í sumar, auk þess að fara til Bremen í Þýskalandi í vetrarfríinu. Höfum við síðan keyrt Danmörk þvert og endilangt.

Við höfum nú átt svolítið við veikindi að stríða af ýmsu tagi á árinu og þurft hjálp frá sjúkrahúsum og læknum. Axel Orri varð mikið veikur í sumar þegar hann fékk vírus sem áður hefur ritað. Dagmar fór í sína fyrstu svæfingu (í lífinu) á árinu þegar hún fór í aðgerð við kviðsliti. Við höfum síðan allt þar til nú verið svona hálf slappelsisleg.
En það er nú vonandi yfirstaðið.

Anna Marín hefur haft mikið að gera bæði í íþróttum og skólanum og hefur allt gengið vel. Þótt stundum hafi þurft að taka fram sálfræðihandbækur.......
”um ástir og skot barna-bráðum-unglinga”

Ég þakka traustum lesendum fyrir áhugann á þessum pistlaskrifum mínum, sem hafa fyrst og fremst verið ætluð okkur sjálfum sem dagbók, þegar frá líður. Og jú fyrir ættingja og vini sem hafa áhuga á að fylgjast með lífi okkar hér. Athugasemdir ykkar hafa verið hvatning til frekari skrifa og vona ég að ég finni nærveru ykkar á nýju ári.

Og að lokum, megir þú sjá nýtt ár í björtu ljósi, verða þér gæfuríkt og vonandi tekst þér að ná þeim markmiðum sem þú setur þér. Hugsaðu vel um kjarna-fjölskyldu þína á þessum ógnarlífshraða sem við lifum og óútreiknanlegu tímum.

Gleðilegt ár.

Séra Kristinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter